Stílhrein kósíheit

Ólafía Þórunn Krist­ins­dóttir, fyr­ir­tækja­eig­andi og golfari, býr ásamt fjöl­skyldu sinni í tveggja hæða rað­húsi þar sem mínímal­ism­inn og hlý­leik­inn leika sér saman. Ólafía Þórunn er fyr­ir­mynd margra. Hún hefur gengið í gegnum erf­ið­leika, svo sem áfallastreituröskun og kulnun, og stendur keik eftir þá reynslu og getur án efa hjálpað öðrum í sömu sporum með því að segja frá reynslu sinni.

Stílhrein kósíheit
Hjónin Ólafía Þórunn og Thomas og yngri sonur þeirra, Alex­ander. Tolli mál­aði mál­verkið sem er af Herðu­breið. Mynd: Golli

Þorri er handan við hornið og vetr­ar­sólin reynir sitt besta til að láta ljós sitt skína. Nýleg hús og flottur arki­tektúr njóta sín í Urriða­holti og í einu þeirra, tveggja hæða rað­húsi, býr Ólafía Þórunn Krist­ins­dóttir, fyr­ir­tækja­eig­andi og golfari, ásamt fjöl­skyldu sinni. Eig­in­mað­ur­inn er Þjóð­verj­inn Thomas Bojanowski, sem rekur fyr­ir­tækið Scholarbook, og syn­irnir eru Maron, sem er þriggja og hálfs árs, og Alex­ander sem verður eins árs núna í febr­úar. Maron er í leik­skól­anum en Alex­ander sefur í vagni úti á svölum.

Húsið og heim­ili fjöl­skyld­unnar er ekki það eina sem er eins og lista­verk – útsýnið úr stofu­glugg­unum er eins og síbreyti­legt lista­verk þar sem Esjan og Víf­ils­staða­hlíð blasa við. Og him­inn­inn er lista­verk út af fyrir sig.

Hjónin eiga heim­ili í tveimur löndum en í Þýska­landi eiga þau ein­býl­is­hús í borg­inni Koblenz og þar vaxa blóm í ýmsum litum í garð­inum á sumrin. Hjónin festu kaup …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár