Fermingarsystur

Syst­urnar Inga Malín og Þórdís Arna ræða ferm­ingar nútím­ans en Edda og Björg rifja upp ferm­ing­ar­daga sína frá sjötta ára­tug síð­ustu aldar. Ýmislegt hefur breyst er við­kemur ferm­ingar- og páska­haldi. Til dæmis að ekki mátti prjóna á föstu­dag­inn langa og að í ferm­ing­ar­veislum var boðið upp á sígar­ettur.

Fermingarsystur
Speg­il­inn Inga Malín og Þórdís Arna horfa í spegil sem Inga Malín fékk í ferm­ing­ar­gjöf sem hluta af yfir­haln­ingu á her­berg­inu. Mynd: Golli

Ferm­ingar eru á næsta leiti. Þær marka tíma­mót á upp­vaxt­ar­árum barna og eru eins konar vígsla inn í heim full­orð­inna og sjálf­stæðrar ákvarð­ana­töku. Yfir­leitt bíða börn eftir ferm­ing­ar­degi með mik­illi eft­i­vænt­ingu enda sam­anstendur dag­ur­inn af athöfn, veislu­höldum, gjöfum og gleði. En hvernig voru ferm­ingar hér áður fyrr? Og hvað skiptir ferm­ing­ar­börn dags­ins í dag mestu máli? 

Heim­il­is­blaðið ræddi við tvö pör af systrum. Þær Eddu og Björgu Sölva­dætur, 83 og 79 ára. Og Ingu Malín og Þórdísi Örnu Guð­jóns­dætur, 15 og 13 ára.

Edda og Björg / Inga Malín og Þórdís ArnaSyst­urnar rifja upp ferm­ing­ar­dag Eddu árið 1956. Ræða ferm­ing­ar­dag Ingu Malínar árið 2024.

Systrasambandið

Syst­urnar Edda og Björg taka bros­andi á móti blaða­manni á heim­ili Eddu. Hún býr í íbúð á dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­il­inu Mörkinni. Edda er eldri, fædd 1942, en Björg árið 1945. Þær ólust upp á tveimur stöðum, fyrst á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár