Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar var stofnuð árið 1990 og er þar með elsta starfandi útfararþjónustan á höfuðborgarsvæðinu. Rúnar Geirmundsson hefur frá upphafi veitt fyrirtækinu forstöðu sem framkvæmdastjóri og útfararstjóri. Útfararþjónustan er í eigu Rúnars og eiginkonu hans, Kristínar Sigurðardóttur, en synir þeirra, Elís og Sigurður, starfa einnig hjá fyrirtækinu.
Við andlát ættingja verða þáttaskil sem marka spor í lífi fólks. Eðlilega vakna margar spurningar um hvaða ferli taki þá við. Best er að hafa sem fyrst beint samband við útfararþjónustuna og fá ráðleggingar um næstu skref. Við höfum áratuga reynslu af að annast alla þætti útfararþjónustu.
Við erum til staðar allan sólarhringinn, alla daga ársins, og leggjum áherslu á hlýju, auðmýkt og virðingu í þjónustu okkar. Við gerum okkur grein fyrir því að ástvinamissir er sár og við viljum því gera allt ferlið sem auðveldast fyrir aðstandendur.
Í samráði við aðstandendur og starfsfólk á viðkomandi heilbrigðisstofnun sér útfararþjónustan um að flytja hinn látna í líkhús. Hægt er að hafa samband allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Fljótlega eftir andlát er gott að aðstandendur og útfararstjóri mæli sér mót og ræði næstu skref. Hægt er að hafa slíkan fund hvar sem aðstandendum hentar best og er algengast er að útfararstjóri komi heim til aðstandenda, fari yfir undirbúning og skipulag útfarar.
Hér er upptaling á því sem við sjáum um fyrir þína hönd
Prestur, athafnastjóri eða forstöðumaður trúfélags
Aðstandendur velja þann sem þau óska að taki að sér útförina. Gott er að heyra beint í viðkomandi og eru flestallir prestar skráðir í símaskrá og/eða í viðkomandi kirkju. Útfararþjónustan aðstoðar aðstandendur við að komast í samband við prest, athafnastjóra eða forstöðumann trúfélags sé þess óskað.
Kistulagning og útför
Ákveða þarf hvar og hvenær athöfnin skal fara fram. Algengt er að kistulagningar fari fram á sama stað og sama dag og útför og þá gjarnan um einni til tveimur klukkustundum fyrir útförina. Einnig er hægt að hafa kistulagningu nokkrum dögum fyrir útför sé þess óskað. Algengast er þá að kistulagning fari fram í Fossvogskappellu. Útfararþjónustan sér um að bóka kirkju fyrir kistulagningu og útför í samráði við aðstandendur.
Bálför eða jarðarför
Í samráði við óskir hins látna ákveða aðstandendur hvort fram fari bálför eða jarðarför. Útfararþjónustan aðstoðar við að afla tilskilinna leyfa og fá legstæði í kirkjugarði.
Legstæði í kirkjugarði
Útfararþjónustan sér um öll samskipti við kirkjugarða fyrir aðstandendur. Við aðstoðum við að fá úthlutað legstæði, hvort sem er fyrir kistur eða duftker, og öflum tilskilinna leyfa. Í samráði við aðstandendur tökum við frá grafarstæði við hlið hins látna sé þess óskað.
Dánarvottorð
Læknir á viðkomandi heilbrigðisstofnun ritar dánarvottorð. Aðstandandi hins látna fær afhent dánarvottorð á heilbrigðisstofnun eða hjá lækni sem skoðaði hinn látna.
Kistulagning
Kistulagning er stutt kveðjuathöfn fyrir nánastu fjölskyldu og vini. Aðstandendur ganga að kistu og kveðja hinn látna, sem oftast er með opinni kistu og blæju yfir ásjónu. Tónlist getur verið spiluð samkvæmt óskum aðstandenda, og í samráði við prest eða athafnastjóra. Aðstandendur geta valið að vera viðstaddir þegar kistunni er lokað, en það fer eftir óskum hvers og eins.
Kistulagning fer oft fram á sama stað og útförin og getur verið fyrir eða eftir útförina. Ef þess er óskað, er hægt að halda kistulagningu nokkrum dögum fyrir útför.
Útför
Í útför eru kirkjuvörður og útfararstjóri viðstaddir og taka á móti aðstandendum. Í hefðbundnum athöfnum situr nánasta fjölskylda á fremstu bekkjum í kirkjunni og kistuberar fremst hægra megin. Útfararstjóri fer yfir það með burðarmönnum hvernig best sé að bera kistuna. Það er venja að sex eða átta burðarmenn beri kistuna út, og oft eru blóm og kransar borin út af aðstandendum.
Veraldleg útför
Veraldlegar útfarir hafa vaxið í vinsældum á undanförnum árum. Þessar útfarir eru með það að markmiði að heiðra minningu hins látna á formlegan og virðulegan hátt, án trúarlegra hefða. Þó að veraldlegar útfarir séu sniðnar að þörfum þeirra sem hafa veraldlegar eða húmanískar lífsskoðanir, eru þær opnar öllum óháð lífsskoðun.
Sálmaskrá
Sálmaskrá er prentuð dagskrá útfararinnar sem útfararþjónustan útbýr og prentar eftir óskum aðstandenda. Aðstandendur geta sent myndir til að prenta í sálmaskrá og fá til baka próförk til að lesa yfir áður en prentað er. Þegar skráin er tilbúin til prentunar tilkynna aðstandendur útfararþjónustunni hversu mörg eintök þeir óska eftir.
Tónlist fyrir athöfn
Ef óskað er eftir tónlist í útför getur útfararþjónustan haft milligöngu um tónlistarflutning. Oft er létt tónlist spiluð fyrir athöfnina, sem getur varað í 20–30 mínútur, áður en athöfnin hefst. Athugið að tónlistarfólki getur þurft að greiða aukalega fyrir tónlistarflutning.
Dæmi um uppsetningu á útför:
- Forspil
- Bæn
- Ritningarlestur
- Sálmur eða tónlist
- Guðspjall
- Sálmur eða tónlist (einsöngur eða einleikur)
- Minningarorð
- Sálmur eða tónlist (einsöngur eða einleikur)
- Bænir
- Faðir vor
- Sálmur eða tónlist
- Moldun
- Sálmur eða tónlist
- Blessun
- Eftirspil
- Við lok útfarar
Kistan er borin út í bíl undir eftirspilinu og viðstaddir kveðja hinn látna. Þegar blóm og kransar eru við kistu er algengt að þeir séu bornir út af ættingjum. Aðstandendur ganga með kistunni í kirkjugarðinn þar sem hún er lögð í gröf eftir nokkur orð frá presti eða athafnastjóra.
Bálför
Bálför er að öllu leyti lík jarðarför, að því undanskildu að kistan er ekki borin í kirkjugarð. Ferlið við athöfnina er því sambærilegt jarðarför, en kistan er brennd í stað þess að vera grafin.
Við höfum útbúið minnisblað fyrir aðstandendur, sem hægt er að finna á utfarir.is, og þar er hægt að prenta út minnislistann sem er gott að hafa til hliðsjónar þegar útför er skipulögð.
Með hlýrri kveðju
Rúnar, Elís og Sigurður
www.utfarir.is
Sími. 567-9110
Netfangið okkar. utfarir@utfarir.is













Athugasemdir