Hún heitir Sigríður og er dýralæknir, staðsett í Móabarði 32b, Hafnarfirði. Sigríður er menntuð frá Noregi sem dýralæknir og útskrifaðist árið 1997. Sigríður hóf feril sinn sem dýralæknir á Vestfjörðum og gegndi þar embætti héraðsdýralæknis í þremur sýslum. Sigríður á sjálf tvo hunda og segist oft bregða þegar hún heyrir verðið sem er í gangi á markaðnum fyrir almennar dýralækningar. Hún fær oft að heyra að fólk hreinlega trúi því ekki að hennar þjónusta sé á svona góðu verði þegar það fær reikninginn í hendurnar.
Nefnir hún til dæmis að hjá henni kosti bæði fyrri og seinni bólusetning kettlinga, ormahreinsun, örmerking og skráning á dýrinu 25.000 kr. og það sama gildi fyrir hvolpa.
Stofan hjá Sigríði er ósköp notaleg. Hún er björt og andrúmsloftið afslappað eins og Sigríður sjálf. Hún setti stofuna upp í bílskúrnum hjá sér en þar gerir hún flest allt nema ófrjósemisaðgerðir á tíkum og stærri aðgerðir. Hún bendir á að það séu hátæknisjúkrahús sem séu betur búin til þess og nefnir hún þá sérstaklega Dýraspítalann í Garðabæ.

Hún starfar eins og er ein á stofunni en miðað við fjölgun viðskiptavina sér hún fram á að þurfa að stækka við sig á næstu misserum. Sigríður nefnir að hún sé að taka inn nýja tækni fyrir eldri gæludýr sem eru að fást við mikla verki út frá gigt eða slitum og fer hún fram með laser-tækni sem dregur úr bólgum og verkjum. Segist hún viss um að það muni slá í gegn hjá þeim sem eru með eldri gæludýr svo hægt sé að veita þeim síðustu árin sín sársaukalaus án lyfja, sem draga jafnvel úr lífsgæðum dýranna undir það síðasta.
Fyrir Sigríði eru dýralækningar hennar hjartans mál og telur hún að það eigi ekki að fara eftir stöðu þinni á vinnumarkaði hvort þú hafir efni á að halda gæludýr; þau séu félagsskapur fyrst og fremst til að draga úr einmanaleika og eiga að veita gleði. En hver er gleðin þegar eitthvað eins einfalt eins og tannhreinsun dýrsins setur mánuðinn á hvolf fjárhagslega?

Sigríður segir að hjá henni sé hún ekki að svæfa dýr fyrir tannhreinsun heldur gefi hún frekar róandi ef dýrið er stressað, sem lækkar kostnað umtalsvert, og tekur það dýrið skamman tíma að jafna sig. Þessi leið er eins áhættulaus og verður á kosið, sérstaklega fyrir eldri dýrin sem þola verr svæfingar.
Sigríður er með Facebook-síðuna SISVET og þar er alltaf hægt að ná sambandi við hana en einnig er hægt að bóka tíma á NOONA.
Sigríður segist hlakka til að taka við öllum ferfætlingum til sín, stórum sem smáum, og segist vilja koma því á framfæri að hún taki líka að sér búfjárköll.













Athugasemdir