
Seljuskógar 18 á Akranesi
Fasteignasalan Hraunhamar er með í sölu vel skipulagt sex herbergja, 213,2 fm einbýlishús með bílskúr við Seljuskóga 18 á Akranesi og er innangengt í bílskúrinn. Um er að ræða kanadískt timburhús með steyptri gólfplötu. Gólfhiti með stýringum er í hverju rými hússins, góð lofthæð er í alrými og eru gluggar þar stórir. Vínylparket og flísar eru á gólfum. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu. Ýmislegt hefur verið gert fyrir húsið á undanförnum árum.
Malarplan er fyrir framan húsið og fyrir aftan húsið er gróinn garður. Sólpallur í garðinum snýr í suður og þar er einnig að finna heitan pott og geymsluskúr.

Hallgerðartún 34 á Hvolsvelli
Fasteignasalan Hraunhamar er með í sölu einlyft parhús við Hallgerðartún 34 á Hvolsvelli sem skilað verður fullbúnu og er áætluð afhending í lok apríl. Lóðin verður þökulögð og mulningur á bílaplani. Húsið er 143 fm og …












Athugasemdir