Húsnæðiskaup eru oftast stærsta, einstaka fjárhagslega ákvörðunin sem fólk tekur á lífsleiðinni og val á íbúðaláni er stór hluti af henni. Því er afar mikilvægt að velja það lán sem best hentar hverjum og einum og hittir á réttu þróunina fram á við. Mikilvægasta valið liggur í því hvort lánið er verðtryggt eða óverðtryggt og hvort vextir eru fastir eða breytilegir. Lykilatriði varðandi bæði atriði er hvort verðbólga hækkar eða lækkar og hvort lántakandinn þolir sveiflur í greiðslubyrði eða ekki.
Við mat á stöðunin leitaði Heimilisblaðið meðal annars til Georgs Lúðvíkssonar, sérfræðings í heimilisfjármálum. Hann bendir á að oftast býður „bankinn minn“ alls ekki best.
„Lán Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) og stóru bankanna eru opin öllum en lífeyrissjóðir bjóða einnig húsnæðislán til sjóðsfélaga sinna og stundum eru kjörin þar betri. Lánareglur eru oftast aðeins rýmri fyrir fyrstu kaupendur en aðra. Við val á láni skipta vaxtakjörin auðvitað miklu …












Athugasemdir