Rækta ástina heima

Tvö pör deila því hvernig þau rækta ást­ina heima fyrir og hvað skiptir þau máli. Áslaug Krist­jáns­dóttir kyn­fræð­ingur segir mik­il­vægt að pör eigi ein­læg sam­töl um heim­il­is­lífið og sam­bandið. Ráðlegt er að halda slíkum sam­tölum utan svefn­her­berg­is­ins.

Rækta ástina heima
Róm­an­tíkin og barna­upp­eldið Maren Birg­is­dóttir borðar ís á meðan for­eldrar hennar Dísa Stein­ars­dóttir og Birgir Þór Júl­í­us­son sitja fyrir. Dísa segir börnin ekki þurfa að víkja þó að for­eldr­arnir eigi róm­an­tíska stund saman. Mynd: Golli

Val­ent­ínus­ar­dag­ur­inn er núna, föstu­dag­inn 14. febr­úar. Tuttugu dagar eru frá bónda­deg­inum og konu­dag­ur­inn verður í næstu viku. Um allt land birta pör myndir af sér á sam­fé­lags­miðlum með yfir­skrift­inni; bónd­inn minn, konan mín, ástin mín. Líkt og róm­an­tíkin hafi aldrei verið meiri, ástin í hámarki. Á sama tíma ganga rauðar veð­ur­við­var­anir yfir landið og grár hvers­dags­leik­inn virð­ist vera óspenn­andi. Hvernig er hægt að við­halda róm­an­tík­inni í þessum hvassa hvers­dags­leika? Hvað gera pör heima fyrir til að rækta ást­ina? Og birt­ist hún á ólíkan hátt í mis­mun­andi her­bergjum heim­il­is­ins? 

Heilbrigt heimilislíf

Áslaug Krist­jáns­dóttir er kyn­fræð­ingur, kyn­lífs­ráð­gjafi og hjúkr­un­ar­fræð­ingur að mennt og höf­undur bók­ar­innar Lífið er kyn­líf, hand­bók kyn­fræð­ings um lang­tíma­sam­bönd.

Á kaffi­húsi í mið­bænum hlustar kyn­fræð­ing­ur­inn á vanga­veltur blaða­manns um hvernig megi rækta ást­ina heima fyrir og hvort ástin birt­ist á ólíkan hátt í mis­mun­andi her­bergjum. Er eitt­hvert vit í þessu? „Já, mér finnst þessi hug­mynd algjör­lega í takt við raun­veru­leik­ann og í takt við það sem ég heyri frá fólki og ráð­legg því.“ 

Í para­ráð­gjöf leggur Áslaug gjarnan til að pör eigi sam­töl sem snúa að ást­ar­sam­band­inu ann­ars staðar en inni í svefn­her­berg­inu. „Það er of nálægt okkur og of per­sónu­legt rými.“ Í stað­inn sé hægt að ræða saman í eld­hús­inu eða stof­unni. Það sé ákjós­an­legra heldur en að sam­tals­stað­ur­inn sé „uppi í rúmi eftir mis­heppn­aða til­raun til kyn­lífs. Þá erum við öll alltof við­kvæm.“ 

Einlæg sam­töl um heim­il­is­lífið hjálpa pörum að skilja hvort annað betur og takast á við breyt­ingar á heim­il­inu í sam­ein­ingu. „Ég held að þegar við erum að hefja ást­ar­sam­band, fjöl­skyldu­líf og taka þessi eðli­legu skref í sam­bandi að þá sé gott að setj­ast niður og ræða þetta.“ 

Sam­skipta­vandi verði gjarnan til vegna hug­mynda fólks um hvað telst eðli­legt og hvað ekki. Þær hug­myndir mót­ast alla jafna í barn­æsku og geta orðið rót­grónar. „Eins og þegar við erum að ræða um hvernig heim­ilið okkar á að vera að segja: Já, mamma gerði þetta alltaf svona.“ Svör af þessu tagi loka sam­tölum og eru ekki lík­leg til árang­urs. „Þarna var ég að setja punkt í sam­talið þar sem á kannski bara að vera komma.“ Betra er að hafa kær­leik að leið­ar­ljósi. „Segja: Já, svona var þetta alltaf gert heima hjá mér. Leyfðu mér aðeins að hugsa málið og ég ætla að koma til baka þegar ég er búin að finna hug­mynd að lausn.“ 

Maren, Dísa og BirgirSitja á upp­á­halds­staðnum sínum á heim­il­inu. Þar eiga Dísa og Birgir inni­leg sam­töl um allt milli him­ins og jarðar.

Úr kattakompu í fjölskyldulíf

„Við tvö, við erum eig­in­lega mest bara að spjalla. Við sitjum oft hér og spjöllum fram á nótt,“ segir Dísa Stein­ars­dóttir sem situr í græn­leitum sófa í stof­unni á heim­ili sínu. Við hlið hennar er mak­inn, Birgir Þór Júl­í­us­son. „Klukkan er orðin tvö að nóttu og við erum hér að tala um allt og ekk­ert.“ 

Dísa og Birgir fóru á fyrsta stefnu­mótið sitt að vori árið 2021, þökk sé Tinder. Þau vissu þó af hvort öðru vegna þess að Dísa vann á leik­skóla þar sem dóttir Birgis úr fyrra sam­bandi var inn­rituð. Á þeim tíma voru þau bæði í föstum sam­böndum og áttu örsjaldan í sam­skiptum. 

Dísa rifjar upp að Tinder-prófíll Birgis hafi verið eilítið blekkj­andi. Hann lýsti sjálfum sér sem miklum mat­gæð­ing sem elskaði að vinna í garð­inum. Hún, græn­metisæta á þeim tíma, sá fyrir sér í hill­ingum þennan vegan garð­yrkju­mann. „Ég var bara ú, geggjað kombó! Svo er hann nátt­úr­lega mesti kjöt­ætu­maður sem ég þekki.“

„Þú getur alveg verið mjög ást­fangin af mér núna og svo bara allt í einu eftir sex mán­uði þá bara hat­arðu hvernig ég sötra kaffið mitt“
Dísa

Eftir nokkra mán­uði spurði Dísa Birgi hvort þau væru orðin kærustupar. „Nei, það er ekk­ert strax,“ svar­aði Birgir þá í tvígang. Dísa ætl­aði ekki að sóa neinum tíma og skráði sig þá aftur á Tinder. „Ég hugs­aði bara að hann væri að skemmta sér yfir sum­arið. Að þetta væri bara smá fling hjá honum. Rosalega gaman að vera með yngri konu.“ Dísa er 18 árum yngri en Birgir. „Ég man að hann sagði ein­hvern tím­ann: Þú getur alveg verið mjög ást­fangin af mér núna og svo bara allt í einu eftir sex mán­uði þá bara hat­arðu hvernig ég sötra kaffið mitt.“ 

Þrátt fyrir rólega byrjun hélt ástin áfram að blómstra yfir sum­ar­tím­ann og að hausti fluttu þau inn saman. Köttur Dísu hafði gotið fjórum kett­lingum og íbúðin hennar því und­ir­lögð fjór­fæt­ling­unum. „Og hún er með katt­arof­næmi,“ segir Birgir og lyftir brúnum. „Þetta breytt­ist í katta­kompu og hún átti ekki aft­ur­komu auðið. Það end­aði með að hún flutti inn til okkar. Svo fór hún í heims­reisu.“ Dísa ferð­að­ist ein um heim­inn í nokkra mán­uði en kom svo heim í faðm Birgis og dætra hans tveggja. 

Þau rifja upp þann tíma. „Ég held að það sé rosa­lega gott að byrja á algjöru núlli þegar fólk er að flytja inn saman,“ segir Dísa og minn­ist þess að hafa málað veggi í íbúð Birgis og fært hús­gögn til. Þau lögðu bæði mikið upp úr því að henni liði eins og íbúðin væri heim­ilið hennar. „Það er örugg­lega erfitt að koma inn á heim­ili ann­arra og líða eins og þú megir ekki breyta, þá ertu kannski meira eins og gestur,“ bætir Birgir við og Dísa sam­sinnir. 

Tvískipt heimilislíf

Tveimur árum eftir fyrsta stefnu­mótið fædd­ist dóttir þeirra, Maren. „Dísu lá rosa­lega á að eign­ast barn,“ segir Birgir og lítur á Dísu sem svarar: „Ég var bara með köllun,“ og þau hlæja. 

Heim­il­is­lífið hefur ávallt verið tví­skipt. Eina vik­una eru Dísa og Maren tvær heima. Þá er Birgir fyrir austan að sinna ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu sínu, Nifl­heimum, og dætur hans hjá móður sinni. Hina vik­una eru allir heima.  

Fasti punkt­ur­inn þá viku er mat­ar­tím­inn. „Við borðum alltaf saman á kvöldin. Þá förum við yfir dag­inn og spjöllum,“ segir Birgir. Dísa tekur undir. „Það er mjög mikið atriði hjá okkur að vera saman og spjalla um dag­inn og veg­inn. Það er líka svo mik­ill lær­dómur fyrir stelp­urnar að hlusta á hvor aðra segja sögur og að hlusta á okkur. Það eiga allir sinn stað.“

Parið er dug­legt að við­halda róm­an­tík­inni í hvers­dags­leik­anum. Það er til dæmis alltaf kveikt á kertum á meðan þau borða kvöld­mat­inn. „Það hefur alltaf verið kerta­ljós með kvöld­matnum, sér­stak­lega á vet­urna.“ Dísa bendir í kringum sig á kerta­stjaka sem eru víðs vegar á dreif um stof­una. „Það er rosa­lega heil­agt fyrir okkur að vera ekki með of mikla birtu.“ 

Dísa segir að það sé alveg hægt að eiga róm­an­tíska kvöld­stund með kerta­ljósum þrátt fyrir að börnin séu heima. „Þau þurfa ekki alltaf að víkja, þau geta verið með í nota­leg­heit­unum. Það skiptir máli að kenna þeim það líka,“ segir hún og lítur á Birgi. „Mér finnst dásam­legt þegar við erum bara tvö,“ hún leggur hönd á læri hans. „En mér finnst alveg jafn­gaman þegar við erum öll fimm.“

Þau rifja upp eina slíka stund. Það var á nýárs­dag. Þá sátu þau öll fimm úti í garði í pott­inum umvafin snjó og kerta­ljósum með rólega tón­list í hátal­ara í eld­hús­glugg­anum. Slíkar stundir veita þeim mikla gleði og sveipa hvers­dags­lífið þeim róm­an­tíska blæ sem par­inu þykir svo vænt um.

Snerting lífs­nauð­syn­legKyn­lífs­ráð­gjaf­inn telur snert­ingu vera okkur lífs­nauð­syn­lega og geta kryddað upp á hvers­dags­leik­ann.

Snerting

Aftur að kaffi­hús­inu. Áslaug útskýrir mik­il­vægi snert­ingar í sam­böndum. „Ég held að snert­ingar séu okkur lífs­nauð­syn­legar og þær eru ást­inni lífs­nauð­syn­legar.“ Snerting milli pars getur gert hvers­dags­leik­ann róm­an­tísk­ari en eðli snert­ing­ar­innar fer oft og  tíðum eftir því hvar parið er statt inni á heim­il­inu. 

„Því nær sem að snert­ing er, per­sónu­legri og kyn­ferð­is­legri, því nær svefn­her­berg­inu verður hún. Almennt er fólk ekki að káfa mikið á hvort öðru á kaffi­húsi eða inni í stofu fyrir framan börnin sín, en það gerir það inni í svefn­her­bergi.“

„Í raun­inni er þessi hug­mynd um eðli­legt og óeðli­legt... það væri mjög hjálp­legt ef við myndum hætta að hugsa þannig“
Áslaug Krist­jáns­dóttir

Svefn­her­bergið er yfir­leitt heilag­asti staður pars á heim­il­inu. „Ég held að það sé alltaf hjálp­legt fyrir svefn­inn okkar að hafa her­bergið róandi,“ segir Áslaug og heldur áfram „að það sé ekki mikil óreiða þar inni. Veggirnir séu kannski ekki rauðir á lit­inn heldur frekar grænir.“ Hún hugsar sig um og bætir svo við: „En ef þú vilt stunda hressi­legt kyn­líf þá kannski ættu veggirnir að vera rauðir og smá kaos. Svefn­her­bergið hefur hjá flestu fólki tví­þættan til­gang, það er hvíld og ró og það er kyn­líf. Þetta tvennt fer ekk­ert sér­stak­lega vel saman alltaf.  Kannski er lausnin í fram­tíð­inni að það verða svefn­her­bergi og kyn­lífs­her­bergi.“

Fyrir sum pör er spenn­andi að snert­ast á ákafan hátt utan svefn­her­berg­is­ins. „Sumir eru ævin­týra­gjarnir og vilja vígja hvert her­bergi í nýja hús­inu. Þetta orða­til­tæki hafa held ég allir heyrt og skilja að það þýðir að stunda kyn­líf í hverju her­bergi í hús­inu. Aðrir hugsa bara: Mér finnst það hræði­leg hug­mynd. Ég fer ekki að stunda kyn­líf í barna­her­berg­inu, það er bara ógeðs­legt. Þarna verður fólk að skilja sjálft sig og virða eigin mörk,“ segir Áslaug sem ítrekar að bæði sjón­ar­miðin séu í lagi. „Það er ekki í líf­inu eða kyn­líf­inu, eitt gengur yfir alla. Í raun­inni er þessi hug­mynd um eðli­legt og óeðli­legt ... það væri mjög hjálp­legt ef við myndum hætta að hugsa þannig. Og fara að hugsa: Hvað finnst mér og er það í takt við það sem mak­anum mínum finnst? Ef svarið er já, þá er það frá­bært, þá eigið þið vel saman.“ 

Fimm á hundrað fermetrum

Á fjórðu hæð í skrif­stofu­húsi á Lauga­vegi sitja hjón í sófa og brosa til hvort ann­ars. Kristín Tóm­as­dóttir og Guð­laugur Aðal­steins­son, kall­aður Gulli, rifja upp hvernig leiðir þeirra lágu saman fyrir ell­efu árum síðan. Á þeim tíma voru þau bæði ein­stæðir for­eldrar og fengu ábend­ingu frá sam­eig­in­legum vinum um að þau ættu lík­lega vel saman.

„Ég er ekki viss um að ham­ingja okkar eða barn­anna yrði meiri ef við byggjum á fleiri fer­metrum“
Kristín Tóm­as­dóttir

Það er Gulla eft­ir­minni­legt þegar honum bár­ust skila­boð frá vini þeirra sem spurði hvort hann hefði látið verða af því að senda Kristínu vina­beiðni á Facebook. Þetta var á föstu­dags­kvöldi og áður en Gulli svar­aði kveikti hann á sjón­varp­inu. Þar blasti Kristín við. Hún var gestur í Vikunni hjá Gísla Marteini. Gulli svar­aði vini sínum hið snarasta. „Bíddu, er hún í sjón­varp­inu núna!?“ Vinurinn svar­aði ját­andi og Gulli sendi Kristínu í kjöl­farið vina­beiðni á nýárs­dag 2014. Fyrsta stefnu­mótið var í sund­laug á Þor­láks­höfn, börnin þeirra tvö með. „Og hér, ell­efu árum síðar, sé ég ekki eftir því,“ segir Gulli og brosir til Krist­ínar.

Gulli og KristínUpp­á­halds­sam­veru­stundir Gulla og Krist­ínar á heim­il­inu eru í sóf­anum eða með börn­unum við mat­ar­borðið.

Kristín og Gulli fluttu fljót­lega inn saman og eign­uð­ust svo tvö börn til við­bótar. Í dag býr sex manna fjöl­skyldan í hund­rað fer­metra íbúð í Reykja­vík. Kristín segir þau láta íbúð­ina passa utan um sig. „Ég er ekki viss um að ham­ingja okkar eða barn­anna yrði meiri ef við byggjum á fleiri fer­metrum.“ Hún seg­ist líka með­vituð um að barna­her­bergin breyt­ist einn dag­inn í skrif­stofur. „Þetta er svo stuttur tími sem við erum öll þarna. Þetta er kaó­tískt, vissu­lega. Ég held að það þjappi okkur saman. Það eru ekk­ert allir hver í sínu her­berg­inu að horfa á sjón­varpið. Við erum svo­lítið þétt.“

Það er Kristínu og Gulla hug­leikið að ein­falda heim­il­is­lífið eins og hægt er. Þau seldu til að mynda annan bíl­inn sinn og ákváðu að vinna í sama hús­næði þar sem Kristín leigir skrif­stofu af fyr­ir­tæki Gulla. Hún er para- og fjöl­skyldu­með­ferð­ar­fræð­ingur og rit­höf­undur en Gulli starfar hjá Íslensku aug­lýs­inga­stof­unni. 

Sekúndubrotstengingar

Á tíma­punkti ætl­uðu hjónin að kaupa stærra hús­næði en ákváðu svo að fjár­festa frekar í eign á Siglu­firði, bæ sem er þeim afar kær. „Við erum að gera þetta aðeins öðru­vísi og okkur líður rosa­lega vel að geta núll­stillt okkur á Siglu­firði og eiga eitt­hvert afdrep ann­ars staðar en í hrað­anum hérna í Reykja­vík,“ útskýrir Kristín. Þau sam­eina krafta sína í að gera upp húsið sem er enn í vinnslu. „Við höfum gert eins mikið og hægt er að gera sjálf í hús­inu. Við þurftum að taka allt. Hentum fimm gámum. Stríp­uðum það algjör­lega inn að beini.“ 

Fjöl­skyldan nýtur þess mjög að verja góðum stundum í hús­inu, og á skíða­svæð­inu rétt hjá. „Þar líður öllum rosa­lega vel,“ segir Gulli. Heimilin tvö eru ólík að ýmsu leyti. Í Reykja­vík býr fjöl­skyldan á þriðju hæð með svalir sem eru ekki mikið nýttar en á Siglu­firði er opið út í garð og heitur pottur. Bíl­ferðin milli heim­il­anna tekur fimm klukku­stundir. Kristínu og Gulla þykir vænt um tím­ann í bílnum en þá fá þau yfir­leitt næði til þess að spjalla saman á meðan krakk­arnir sofa eða horfa á eitt­hvað sér til afþrey­ingar. 

Sek­úndu­brots­snert­ingarHjónin eiga svo­kall­aðar sek­úndu­brots­snert­ingar yfir dag­inn. Þá snert­ast þau á ein­hvern hátt, skipt­ast á augn­gotum eða eiga litlar sam­veru­stundir saman.

Spurð hvað þau myndu ráð­leggja ungu pari sem væri að flytja inn saman í fyrsta skipti nefna þau mik­il­vægi þess að við­halda teng­ing­unni stöðugri. Í hvers­dags­leik­anum mynda Kristín og Gulli það sem þau kalla sek­úndu­brotsteng­ingar. Það geta til dæmis verið knús, augn­sam­band eða lítil snert­ing eins og að leið­ast í örstutta stund.

Þau verja líka miklum tíma saman, enda þarf ekki að vera flókið að rækta sam­bandið sam­kvæmt fjöl­skyldu­ráð­gjaf­anum. Hug­myndir um hvað pör eigi að gera til að hlúa að ást­inni geti verið ýktar. „Ef fólk ætlar að rækta ást­ar­sam­bandið sitt þá þarf bara að fara á Hótel Búðir og í þyrlu­flug. En mér finnst svona sek­úndu­brotsteng­ingar skila miklu betri árangri.“  

Þær sam­veru­stundir sem hjónin halda hvað mest upp á heima fyrir eru kvöld­mál­tíðir þegar börnin þeirra fjögur kepp­ast við að segja frá atburðum dags­ins. Og slökun uppi í sófa yfir fréttum eða Gísla Marteini.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár