Valentínusardagurinn er núna, föstudaginn 14. febrúar. Tuttugu dagar eru frá bóndadeginum og konudagurinn verður í næstu viku. Um allt land birta pör myndir af sér á samfélagsmiðlum með yfirskriftinni; bóndinn minn, konan mín, ástin mín. Líkt og rómantíkin hafi aldrei verið meiri, ástin í hámarki. Á sama tíma ganga rauðar veðurviðvaranir yfir landið og grár hversdagsleikinn virðist vera óspennandi. Hvernig er hægt að viðhalda rómantíkinni í þessum hvassa hversdagsleika? Hvað gera pör heima fyrir til að rækta ástina? Og birtist hún á ólíkan hátt í mismunandi herbergjum heimilisins?
Heilbrigt heimilislíf
Áslaug Kristjánsdóttir er kynfræðingur, kynlífsráðgjafi og hjúkrunarfræðingur að mennt og höfundur bókarinnar Lífið er kynlíf, handbók kynfræðings um langtímasambönd.
Á kaffihúsi í miðbænum hlustar kynfræðingurinn á vangaveltur blaðamanns um hvernig megi rækta ástina heima fyrir og hvort ástin birtist á ólíkan hátt í mismunandi herbergjum. Er eitthvert vit í þessu? „Já, mér finnst þessi hugmynd algjörlega í takt við raunveruleikann og í takt við það sem ég heyri frá fólki og ráðlegg því.“
Í pararáðgjöf leggur Áslaug gjarnan til að pör eigi samtöl sem snúa að ástarsambandinu annars staðar en inni í svefnherberginu. „Það er of nálægt okkur og of persónulegt rými.“ Í staðinn sé hægt að ræða saman í eldhúsinu eða stofunni. Það sé ákjósanlegra heldur en að samtalsstaðurinn sé „uppi í rúmi eftir misheppnaða tilraun til kynlífs. Þá erum við öll alltof viðkvæm.“


Einlæg samtöl um heimilislífið hjálpa pörum að skilja hvort annað betur og takast á við breytingar á heimilinu í sameiningu. „Ég held að þegar við erum að hefja ástarsamband, fjölskyldulíf og taka þessi eðlilegu skref í sambandi að þá sé gott að setjast niður og ræða þetta.“
Samskiptavandi verði gjarnan til vegna hugmynda fólks um hvað telst eðlilegt og hvað ekki. Þær hugmyndir mótast alla jafna í barnæsku og geta orðið rótgrónar. „Eins og þegar við erum að ræða um hvernig heimilið okkar á að vera að segja: Já, mamma gerði þetta alltaf svona.“ Svör af þessu tagi loka samtölum og eru ekki líkleg til árangurs. „Þarna var ég að setja punkt í samtalið þar sem á kannski bara að vera komma.“ Betra er að hafa kærleik að leiðarljósi. „Segja: Já, svona var þetta alltaf gert heima hjá mér. Leyfðu mér aðeins að hugsa málið og ég ætla að koma til baka þegar ég er búin að finna hugmynd að lausn.“

Úr kattakompu í fjölskyldulíf
„Við tvö, við erum eiginlega mest bara að spjalla. Við sitjum oft hér og spjöllum fram á nótt,“ segir Dísa Steinarsdóttir sem situr í grænleitum sófa í stofunni á heimili sínu. Við hlið hennar er makinn, Birgir Þór Júlíusson. „Klukkan er orðin tvö að nóttu og við erum hér að tala um allt og ekkert.“
Dísa og Birgir fóru á fyrsta stefnumótið sitt að vori árið 2021, þökk sé Tinder. Þau vissu þó af hvort öðru vegna þess að Dísa vann á leikskóla þar sem dóttir Birgis úr fyrra sambandi var innrituð. Á þeim tíma voru þau bæði í föstum samböndum og áttu örsjaldan í samskiptum.
Dísa rifjar upp að Tinder-prófíll Birgis hafi verið eilítið blekkjandi. Hann lýsti sjálfum sér sem miklum matgæðing sem elskaði að vinna í garðinum. Hún, grænmetisæta á þeim tíma, sá fyrir sér í hillingum þennan vegan garðyrkjumann. „Ég var bara ú, geggjað kombó! Svo er hann náttúrlega mesti kjötætumaður sem ég þekki.“
„Þú getur alveg verið mjög ástfangin af mér núna og svo bara allt í einu eftir sex mánuði þá bara hatarðu hvernig ég sötra kaffið mitt“
Eftir nokkra mánuði spurði Dísa Birgi hvort þau væru orðin kærustupar. „Nei, það er ekkert strax,“ svaraði Birgir þá í tvígang. Dísa ætlaði ekki að sóa neinum tíma og skráði sig þá aftur á Tinder. „Ég hugsaði bara að hann væri að skemmta sér yfir sumarið. Að þetta væri bara smá fling hjá honum. Rosalega gaman að vera með yngri konu.“ Dísa er 18 árum yngri en Birgir. „Ég man að hann sagði einhvern tímann: Þú getur alveg verið mjög ástfangin af mér núna og svo bara allt í einu eftir sex mánuði þá bara hatarðu hvernig ég sötra kaffið mitt.“
Þrátt fyrir rólega byrjun hélt ástin áfram að blómstra yfir sumartímann og að hausti fluttu þau inn saman. Köttur Dísu hafði gotið fjórum kettlingum og íbúðin hennar því undirlögð fjórfætlingunum. „Og hún er með kattarofnæmi,“ segir Birgir og lyftir brúnum. „Þetta breyttist í kattakompu og hún átti ekki afturkomu auðið. Það endaði með að hún flutti inn til okkar. Svo fór hún í heimsreisu.“ Dísa ferðaðist ein um heiminn í nokkra mánuði en kom svo heim í faðm Birgis og dætra hans tveggja.
Þau rifja upp þann tíma. „Ég held að það sé rosalega gott að byrja á algjöru núlli þegar fólk er að flytja inn saman,“ segir Dísa og minnist þess að hafa málað veggi í íbúð Birgis og fært húsgögn til. Þau lögðu bæði mikið upp úr því að henni liði eins og íbúðin væri heimilið hennar. „Það er örugglega erfitt að koma inn á heimili annarra og líða eins og þú megir ekki breyta, þá ertu kannski meira eins og gestur,“ bætir Birgir við og Dísa samsinnir.
Tvískipt heimilislíf
Tveimur árum eftir fyrsta stefnumótið fæddist dóttir þeirra, Maren. „Dísu lá rosalega á að eignast barn,“ segir Birgir og lítur á Dísu sem svarar: „Ég var bara með köllun,“ og þau hlæja.
Heimilislífið hefur ávallt verið tvískipt. Eina vikuna eru Dísa og Maren tvær heima. Þá er Birgir fyrir austan að sinna ferðaþjónustufyrirtækinu sínu, Niflheimum, og dætur hans hjá móður sinni. Hina vikuna eru allir heima.
Fasti punkturinn þá viku er matartíminn. „Við borðum alltaf saman á kvöldin. Þá förum við yfir daginn og spjöllum,“ segir Birgir. Dísa tekur undir. „Það er mjög mikið atriði hjá okkur að vera saman og spjalla um daginn og veginn. Það er líka svo mikill lærdómur fyrir stelpurnar að hlusta á hvor aðra segja sögur og að hlusta á okkur. Það eiga allir sinn stað.“
Parið er duglegt að viðhalda rómantíkinni í hversdagsleikanum. Það er til dæmis alltaf kveikt á kertum á meðan þau borða kvöldmatinn. „Það hefur alltaf verið kertaljós með kvöldmatnum, sérstaklega á veturna.“ Dísa bendir í kringum sig á kertastjaka sem eru víðs vegar á dreif um stofuna. „Það er rosalega heilagt fyrir okkur að vera ekki með of mikla birtu.“
Dísa segir að það sé alveg hægt að eiga rómantíska kvöldstund með kertaljósum þrátt fyrir að börnin séu heima. „Þau þurfa ekki alltaf að víkja, þau geta verið með í notalegheitunum. Það skiptir máli að kenna þeim það líka,“ segir hún og lítur á Birgi. „Mér finnst dásamlegt þegar við erum bara tvö,“ hún leggur hönd á læri hans. „En mér finnst alveg jafngaman þegar við erum öll fimm.“
Þau rifja upp eina slíka stund. Það var á nýársdag. Þá sátu þau öll fimm úti í garði í pottinum umvafin snjó og kertaljósum með rólega tónlist í hátalara í eldhúsglugganum. Slíkar stundir veita þeim mikla gleði og sveipa hversdagslífið þeim rómantíska blæ sem parinu þykir svo vænt um.

Snerting
Aftur að kaffihúsinu. Áslaug útskýrir mikilvægi snertingar í samböndum. „Ég held að snertingar séu okkur lífsnauðsynlegar og þær eru ástinni lífsnauðsynlegar.“ Snerting milli pars getur gert hversdagsleikann rómantískari en eðli snertingarinnar fer oft og tíðum eftir því hvar parið er statt inni á heimilinu.
„Því nær sem að snerting er, persónulegri og kynferðislegri, því nær svefnherberginu verður hún. Almennt er fólk ekki að káfa mikið á hvort öðru á kaffihúsi eða inni í stofu fyrir framan börnin sín, en það gerir það inni í svefnherbergi.“
„Í rauninni er þessi hugmynd um eðlilegt og óeðlilegt... það væri mjög hjálplegt ef við myndum hætta að hugsa þannig“
Svefnherbergið er yfirleitt heilagasti staður pars á heimilinu. „Ég held að það sé alltaf hjálplegt fyrir svefninn okkar að hafa herbergið róandi,“ segir Áslaug og heldur áfram „að það sé ekki mikil óreiða þar inni. Veggirnir séu kannski ekki rauðir á litinn heldur frekar grænir.“ Hún hugsar sig um og bætir svo við: „En ef þú vilt stunda hressilegt kynlíf þá kannski ættu veggirnir að vera rauðir og smá kaos. Svefnherbergið hefur hjá flestu fólki tvíþættan tilgang, það er hvíld og ró og það er kynlíf. Þetta tvennt fer ekkert sérstaklega vel saman alltaf. Kannski er lausnin í framtíðinni að það verða svefnherbergi og kynlífsherbergi.“
Fyrir sum pör er spennandi að snertast á ákafan hátt utan svefnherbergisins. „Sumir eru ævintýragjarnir og vilja vígja hvert herbergi í nýja húsinu. Þetta orðatiltæki hafa held ég allir heyrt og skilja að það þýðir að stunda kynlíf í hverju herbergi í húsinu. Aðrir hugsa bara: Mér finnst það hræðileg hugmynd. Ég fer ekki að stunda kynlíf í barnaherberginu, það er bara ógeðslegt. Þarna verður fólk að skilja sjálft sig og virða eigin mörk,“ segir Áslaug sem ítrekar að bæði sjónarmiðin séu í lagi. „Það er ekki í lífinu eða kynlífinu, eitt gengur yfir alla. Í rauninni er þessi hugmynd um eðlilegt og óeðlilegt ... það væri mjög hjálplegt ef við myndum hætta að hugsa þannig. Og fara að hugsa: Hvað finnst mér og er það í takt við það sem makanum mínum finnst? Ef svarið er já, þá er það frábært, þá eigið þið vel saman.“
Fimm á hundrað fermetrum
Á fjórðu hæð í skrifstofuhúsi á Laugavegi sitja hjón í sófa og brosa til hvort annars. Kristín Tómasdóttir og Guðlaugur Aðalsteinsson, kallaður Gulli, rifja upp hvernig leiðir þeirra lágu saman fyrir ellefu árum síðan. Á þeim tíma voru þau bæði einstæðir foreldrar og fengu ábendingu frá sameiginlegum vinum um að þau ættu líklega vel saman.
„Ég er ekki viss um að hamingja okkar eða barnanna yrði meiri ef við byggjum á fleiri fermetrum“
Það er Gulla eftirminnilegt þegar honum bárust skilaboð frá vini þeirra sem spurði hvort hann hefði látið verða af því að senda Kristínu vinabeiðni á Facebook. Þetta var á föstudagskvöldi og áður en Gulli svaraði kveikti hann á sjónvarpinu. Þar blasti Kristín við. Hún var gestur í Vikunni hjá Gísla Marteini. Gulli svaraði vini sínum hið snarasta. „Bíddu, er hún í sjónvarpinu núna!?“ Vinurinn svaraði játandi og Gulli sendi Kristínu í kjölfarið vinabeiðni á nýársdag 2014. Fyrsta stefnumótið var í sundlaug á Þorlákshöfn, börnin þeirra tvö með. „Og hér, ellefu árum síðar, sé ég ekki eftir því,“ segir Gulli og brosir til Kristínar.

Kristín og Gulli fluttu fljótlega inn saman og eignuðust svo tvö börn til viðbótar. Í dag býr sex manna fjölskyldan í hundrað fermetra íbúð í Reykjavík. Kristín segir þau láta íbúðina passa utan um sig. „Ég er ekki viss um að hamingja okkar eða barnanna yrði meiri ef við byggjum á fleiri fermetrum.“ Hún segist líka meðvituð um að barnaherbergin breytist einn daginn í skrifstofur. „Þetta er svo stuttur tími sem við erum öll þarna. Þetta er kaótískt, vissulega. Ég held að það þjappi okkur saman. Það eru ekkert allir hver í sínu herberginu að horfa á sjónvarpið. Við erum svolítið þétt.“
Það er Kristínu og Gulla hugleikið að einfalda heimilislífið eins og hægt er. Þau seldu til að mynda annan bílinn sinn og ákváðu að vinna í sama húsnæði þar sem Kristín leigir skrifstofu af fyrirtæki Gulla. Hún er para- og fjölskyldumeðferðarfræðingur og rithöfundur en Gulli starfar hjá Íslensku auglýsingastofunni.
Sekúndubrotstengingar
Á tímapunkti ætluðu hjónin að kaupa stærra húsnæði en ákváðu svo að fjárfesta frekar í eign á Siglufirði, bæ sem er þeim afar kær. „Við erum að gera þetta aðeins öðruvísi og okkur líður rosalega vel að geta núllstillt okkur á Siglufirði og eiga eitthvert afdrep annars staðar en í hraðanum hérna í Reykjavík,“ útskýrir Kristín. Þau sameina krafta sína í að gera upp húsið sem er enn í vinnslu. „Við höfum gert eins mikið og hægt er að gera sjálf í húsinu. Við þurftum að taka allt. Hentum fimm gámum. Strípuðum það algjörlega inn að beini.“
Fjölskyldan nýtur þess mjög að verja góðum stundum í húsinu, og á skíðasvæðinu rétt hjá. „Þar líður öllum rosalega vel,“ segir Gulli. Heimilin tvö eru ólík að ýmsu leyti. Í Reykjavík býr fjölskyldan á þriðju hæð með svalir sem eru ekki mikið nýttar en á Siglufirði er opið út í garð og heitur pottur. Bílferðin milli heimilanna tekur fimm klukkustundir. Kristínu og Gulla þykir vænt um tímann í bílnum en þá fá þau yfirleitt næði til þess að spjalla saman á meðan krakkarnir sofa eða horfa á eitthvað sér til afþreyingar.

Spurð hvað þau myndu ráðleggja ungu pari sem væri að flytja inn saman í fyrsta skipti nefna þau mikilvægi þess að viðhalda tengingunni stöðugri. Í hversdagsleikanum mynda Kristín og Gulli það sem þau kalla sekúndubrotstengingar. Það geta til dæmis verið knús, augnsamband eða lítil snerting eins og að leiðast í örstutta stund.
Þau verja líka miklum tíma saman, enda þarf ekki að vera flókið að rækta sambandið samkvæmt fjölskylduráðgjafanum. Hugmyndir um hvað pör eigi að gera til að hlúa að ástinni geti verið ýktar. „Ef fólk ætlar að rækta ástarsambandið sitt þá þarf bara að fara á Hótel Búðir og í þyrluflug. En mér finnst svona sekúndubrotstengingar skila miklu betri árangri.“
Þær samverustundir sem hjónin halda hvað mest upp á heima fyrir eru kvöldmáltíðir þegar börnin þeirra fjögur keppast við að segja frá atburðum dagsins. Og slökun uppi í sófa yfir fréttum eða Gísla Marteini.












Athugasemdir