Sandra Dís Sigurðardóttir, innanhússarkitekt og lýsingarhönnuður, segir að sitt eigið heimili sé erfiðasta verkefnið sem hún hefur tekist á við á ferlinum.
Hún er menntaður innanhússarkitekt en bætti lýsingarhönnun við í kjölfarið. Hún hefur starfað sem lýsingarhönnuður fyrir Verkís og Lisku en síðustu ár hefur hún starfað sjálfstætt við lýsingarhönnun og innanhússarkitektúr.
Aðspurð hvert hún sækir innblástur segir hún hann koma alls staðar að. „Sérstaklega þegar ég fer utan kem ég alltaf með fullt af hugmyndum heim, eftir að hafa heimsótt fallegar verslanir, veitingastaði, hótel og fleira. Svo þegar næsta verkefni hefst sæki ég oft í þessar hugmyndir, til dæmis fyrir efnisval, liti, áferðir og svo framvegis.“
Þau hjónin hafa verið að byggja eigið hús síðastliðin ár. „Við ákváðum að fara frekar hægt í framkvæmdirnar og ná að gera þetta nákvæmlega eins og okkur langar til að hafa þetta og búa við mikið af tímabundnum lausnum í …














Athugasemdir