Hjónin Sveindís Anna Jóhannsdóttir, félagsráðgjafi og framkvæmdastjóri hjá Starfsendurhæfingu Hafnarfjarðar og auk þess formaður Handleiðslufélags Íslands, og Arnar Sveinsson rafvirkjameistari, sem rekur fyrirtækið Rafsmiðjuna ehf., eiga þrjár dætur. Elst er Helga Rós, sem er nýútskrifaður atvinnuflugmaður og er í umsóknarferli fyrir flugmannsstarf en starfar nú sem flugfreyja, á sambýli og í vörukynningum. Edda Sóley er ári yngri og er hún að læra lýðheilsufræði í Danmörku og vinnur á pílustað. Yngst er Ellen María, sem er menntaskólanemi og vinnur á veitingastað. Öll fjölskyldan, nema Edda Sóley, er saman komin í stofunni á heimili fjölskyldunnar. Íslenski rakkinn Garpur heldur sig nálægt fólkinu sínu. Hann er fimm ára gamall og ættaður úr Hnífsdal. Tilefni viðtalsins er að tala um hvað fjölskyldan geri til að styrkja tengslin, skapa góðar stundir og hvað gert er til þess að yfirvinna áskoranir.
Er fjölskyldan samrýnd? „Já, ég myndi alveg segja það,“ segir Sveindís.
„Ég er …












Athugasemdir