Sveindís, Ellen María, Arnar og Helga Rós og svo Garpur sem er stilltur og prúður íslenskur fjár­hundur. Hjónin hafa alla tíð lagt áherslu á góðar sam­veru­stundir og að vera alltaf til taks. Mynd: Golli

Sjálfstæð en samrýnd og takast saman á við áskoranir

Hjónin Sveindís Anna Jóhanns­dóttir og Arnar Sveins­son eiga þrjár dætur. Fjöl­skyldan hefur alla tíð verið sam­rýnd og hafa hjónin lagt áherslu á góðar sam­veru­stundir og að vera alltaf til taks. Þá tekst fjöl­skyldan saman á við áskor­anir sem koma upp. Rakkinn Garpur sam­einar svo fjöl­skyld­una á sinn hátt.

Hjónin Sveindís Anna Jóhanns­dóttir, félags­ráð­gjafi og fram­kvæmda­stjóri hjá Starfsend­ur­hæf­ingu Hafn­ar­fjarðar og auk þess for­maður Hand­leiðslu­fé­lags Íslands, og Arnar Sveins­son raf­virkja­meist­ari, sem rekur fyr­ir­tækið Raf­smiðj­una ehf., eiga þrjár dætur. Elst er Helga Rós, sem er nýút­skrif­aður atvinnu­flug­maður og er í umsókn­ar­ferli fyrir flug­manns­starf en starfar nú sem flug­freyja, á sam­býli og í vöru­kynn­ingum. Edda Sóley er ári yngri og er hún að læra lýð­heilsu­fræði í Danmörku og vinnur á pílu­stað. Yngst er Ellen María, sem er mennta­skóla­nemi og vinnur á veit­inga­stað. Öll fjöl­skyldan, nema Edda Sóley, er saman komin í stof­unni á heim­ili fjöl­skyld­unnar. Íslenski rakk­inn Garpur heldur sig nálægt fólk­inu sínu. Hann er fimm ára gam­all og ætt­aður úr Hnífsdal. Tilefni við­tals­ins er að tala um hvað fjöl­skyldan geri til að styrkja tengslin, skapa góðar stundir og hvað gert er til þess að yfir­vinna áskor­anir.

Er fjöl­skyldan sam­rýnd? „Já, ég myndi alveg segja það,“ segir Sveindís. 

„Ég er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár