Alltaf verið stemningskona

Jóhanna Þórhalls­dóttir er löngu kunn sem tónlistar­kona, bæði söngkona og kórstjórn­andi, en hún hefur einnig gefið út hljóm­diska og er margra manna maki þegar kemur að list­greinum. Síðustu ár hefur hún snúið sér að myndlist sem hún iðkar af miklum krafti og hefur Jóhanna haldið að minnsta kosti árlega sýningar bæði hér og erlendis. Hún hefur þó aldrei sagt skilið við tónlistina.

Jóhanna Þórhalls­dóttir er síkvik og lærði ekki fyrir löngu þá list að kveða rímur og nú fer hún víða með eigin­manni sínum, Óttari Guðmunds­syni, geðlækni og rithöfundi, til að kynna bók hans um Sigurð Breið­fjörð sem kom út fyrir jól, og kveður þá rímur. Jóhanna hefur alltaf verið mjög skapandi, sem kemur meðal annars fram í matargerðar­listinni. Hún er orðlagður lista­kokkur og mikill matgæðingur en hún gefur hér upp nokkrar uppskriftir sem hafa fylgt henni í gegnum árin og eru undir áhrifum af þeim stöðum sem hún hefur átt heima eða dvalið á.

Jóhanna er mikil stemningskona og hefur gaman af að bjóða í mat og gjarnan með litlum fyrirvara. Fjöl­skylda Jóhönnu og Óttars er stór, telur um 30 manns samanlagt og oft býður hún krökkunum í mat, eins og hún segir. Það eru ákveðnir réttir sem henni finnst gaman að elda þegar hún fær gesti, réttir sem eru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Grein

Með mikinn áhuga á form­breytingar­mönnum í myndlist

Bragi Guðlaugsson á merkilegt og stórt safn málverka sem hann hefur mikla ánægju af en þar leynast dýrmætar perlur þekktra list­málara. Bragi er ástríðu­safnari en hann segist hafa orðið gaman af að kaupa verk eftir list­málara af yngri kynslóðinni. Hann kynntist Karli Kvaran og Guðmundu Andrésdóttur á yngri árum sem hafði sín áhrif, en sjálfur segist hann hafa byrjað að kaupa frekar „ómerki­lega“ myndlist. Þó að listaverk séu uppi um alla veggi og gott betur segist hann alltaf vera veikur fyrir betri verkum en þeim sem hann eigi fyrir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár