Með mikinn áhuga á formbreytingarmönnum í myndlist

Bragi Guð­laugs­son á merki­legt og stórt safn mál­verka sem hann hefur mikla ánægju af en þar leyn­ast dýr­mætar perlur þekktra list­mál­ara. Bragi er ástríðusafn­ari en hann seg­ist hafa orðið gaman af að kaupa verk eftir list­mál­ara af yngri kyn­slóð­inni. Hann kynnt­ist Karli Kvaran og Guðmundu Andr­és­dóttur á yngri árum sem hafði sín áhrif, en sjálfur seg­ist hann hafa byrjað að kaupa frekar „ómerki­lega“ mynd­list. Þó að lista­verk séu uppi um alla veggi og gott betur seg­ist hann alltaf vera veikur fyrir betri verkum en þeim sem hann eigi fyrir.

Bragi á heimili sínu við verk eftir Þorvald Skúlason.
Bragi á heim­ili sínu við verk eftir Þorvald Skúlason. Mynd: Golli

Myndlist betri fjár­fest­ing en rot um helgar

Hvenær byrj­aði þessi áhugi á að safna mynd­list? „Hann kom eig­in­lega vegna þess að ég hætti í óreglu, ég var eitt­hvað byrj­aður að fikta við að kaupa myndir en ég drakk um helgar. Mér var eig­in­lega settur stóll­inn fyrir dyrnar af fjöl­skyld­unni, hætti að drekka og fór þá fyrir alvöru að hafa áhuga á mynd­list, enda er þetta mun betri fjár­fest­ing en viku­legt rot en því miður fara alltof margir þá leið.

Ég byrj­aði að kaupa lista­verk um 1978, þannig að það er orðin næstum hálf öld sem ég hef verið að safna verkum,“ segir Bragi, sem á magnað safn merki­legra mynd­list­ar­verka. „Ég byrj­aði nú ekki á merki­legri mynd­list, satt best að segja, en svo eftir því sem áhug­inn jókst minnk­aði drykkjan að sama skapi. Ég keypti eina Kjar­vals­mynd árið 1980 og byrj­aði að safna af krafti upp úr 1982–1983.“

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

6
Grein

Með mik­inn áhuga á form­breyt­ing­ar­mönnum í mynd­list

Bragi Guð­laugs­son á merki­legt og stórt safn mál­verka sem hann hefur mikla ánægju af en þar leyn­ast dýr­mætar perlur þekktra list­mál­ara. Bragi er ástríðusafn­ari en hann seg­ist hafa orðið gaman af að kaupa verk eftir list­mál­ara af yngri kyn­slóð­inni. Hann kynnt­ist Karli Kvaran og Guðmundu Andr­és­dóttur á yngri árum sem hafði sín áhrif, en sjálfur seg­ist hann hafa byrjað að kaupa frekar „ómerki­lega“ mynd­list. Þó að lista­verk séu uppi um alla veggi og gott betur seg­ist hann alltaf vera veikur fyrir betri verkum en þeim sem hann eigi fyrir.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár