Hvað felst í vistvænni mannvirkjagerð í dag?
Vistvæn mannvirkjagerð felur í sér marga ólíka þætti sem gerir umhverfismálin flókin. Það þarf að horfa á heildarmyndina. Þetta snýst ekki eingöngu um loftslagsmál, þótt þau séu afar mikilvæg, heldur einnig um atriði á borð við hringrásarhagkerfi, efnisval, innivist, orkunotkun, líffræðilegan fjölbreytileika og fleiri þætti sem skipta máli fyrir umhverfi og samfélag.
Af þessum sökum getur verið krefjandi að skilgreina nákvæmlega hvað það er sem gerir byggingu umhverfisvæna. Vottunarkerfi hafa þar gegnt mikilvægu hlutverki, þar sem þau setja skýr viðmið og veita staðfestingu á því að byggingar uppfylli ákveðnar umhverfiskröfur. Hér á landi eru Svanurinn og BREEAM algengustu vottanirnar. Í Svansvottun er horft til alls lífsferils byggingarinnar, allt frá vali á margvíslegu hráefni og framkvæmd, yfir í notkunartíma og að lokum úrgangs- og niðurrifsfasa. Vottunarkerfin leggja þó mismunandi áherslur á þessa þætti.
Jafnframt er hægt að ná fram verulegum umhverfislegum …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.





























Athugasemdir