Er stærri pakkning alltaf ódýrari?

Höfundur gekk um versl­anir með sím­ann á lofti og tók myndir af verð­merk­ingum. Til­finn­ingin var helst sú að vera spæj­ari í leyni­legri rann­sókn. Heima þurfti svo að kom­ast að nið­ur­stöðu í magn­mál­inu.

Hillur í verslun fullar af Cheerios-morgunkorni í fjölbreyttum bragðtegundum. Á mörgum pakkningunum stendur „Family Size“.
Fjöl­skyldu­stærð Stórar pakkn­ingar geta verið hag­stæð­ari, en ekki alltaf.

Eitt var þó form­lega stað­fest: Það er af nægu að taka í vöru­vali nútím­ans. Stundum erum við að velja á milli sex teg­unda af kló­sett­pappír og fimm af tann­kremi, sem öll gefa lof­orð um hvít­ari tennur og mis­mikið flú­or­magn að sjálf­sögðu. Svo er eitt­hvað merkt líf­rænt, syk­ur­laust, prótín­ríkt eða í fjöl­skyldu­stærð og áður en maður veit af er það ein­falda verk­efni að skreppa í búð­ina orðið að tölu­verðu verki.

Þegar við æðum inn í búð­ina, oft svöng og nýbúin að átta okkur á því að fjöl­nota pok­arnir gleymd­ust heima, grípum við gjarnan fyrstu vör­una sem kallar á okkur. Þar skipta kunn­ug­leg vöru­merki auð­vitað máli. En burt­séð frá því þurfum við líka að borga fyrir vör­una og ættum því lík­lega að gefa verð­merk­ing­unum aðeins meiri gaum.

Tæknin átti auð­vitað að ein­falda þetta. Nú getum við verslað á net­inu, skannað og skundað eða gripið og greitt. En þótt við komumst hraðar í gegnum búð­ina er ekki þar með sagt að auð­veld­ara sé að átta sig á því hvað borgar sig.

Flest höfum við ein­hvern tíma teygt okkur eftir stærri pakkn­ing­unni í þeirri trú að meira magn þýði lægra verð, svona eins og þegar keyptar eru tutt­ugu pitsusósur í Costco sem hægt er að nota út árið og jafn­vel á því næsta. Það skal þó tekið fram að Costco er und­an­skilið þess­ari „yfir­grips­miklu“ rann­sókn­ar­vinnu.

Allur gangur á verðmuninum

Er stærri pakkn­ing alltaf ódýr­ari? Svarið er nei. Höfundur skoð­aði verð­merk­ingar í Bónus og Prís og vöru­val Krón­unnar á net­inu dag­ana 13. til 17. ágúst. Bornar voru saman mis­mun­andi stærðir af sömu vörum og miðað við verð á kílói, lítra eða stykki, enda segir verð pakk­ans eitt og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár