„Ég ólst upp við mjög góðan mat. Mamma lagði alla tíð mikið í að búa til góðan mat, er ofboðslega góður kokkur og hafði mikinn metnað fyrir að taka vel á móti fólki. Þegar pabbi var bæjarstjóri í Bolungarvík tók hann heim alls konar framámenn úr þjóðlífinu, innlenda og erlenda. Hann kannnski hringdi og sagði: Heyrðu, ég er með sjö þingmenn, geturðu ekki tekið á móti okkur í hádegismat? Þetta var oft fólk sem átti kannski erindi vestur. Mamma lagði alltaf vel í matargerðina og maturinn var ekki bara góður, hann var líka mjög fjölbreyttur. Svo er ég alin upp við að fá fiskinn spriklandi ferskan beint í pottinn þannig að ég er pikkí á allan fisk. Ég hringi oft í mömmu og spyr hana hvernig ég eigi að snúa mér með ákveðna hluti í matargerðinni og hún hefur verið mér mjög mikill kennari í þessu. Minnisstæðasti rétturinn frá æskuheimili …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

























Athugasemdir