Það skiptir öllu máli að hafa fallega list í kringum sig

Áslaug Íris Katrín Friðjóns­dóttir er ein af okkar yngri myndlistar­mönnum sem er mjög virk en verk hennar hafa verið sýnd á sýningum í söfnum og galleríum á Íslandi, í Evrópu og Banda­ríkjunum. Þann 24. maí verður einka­sýningin Spegil­mynd opnuð í Þulu galleríi i Marshall-húsinu en eitt verkanna hangir á vegg sem við fengum að sjá, verk sem talar inn í samtímann að mörgu leyti.

Áslaug Íris fæddist árið 1981 í Reykjavík. Hún lauk B.A.-gráðu í myndlist frá Lista­háskóla Íslands árið 2006 og M.F.A.-gráðu frá School of Visual Arts í New York árið 2009. Áhuginn á myndlist kviknaði snemma hjá Áslaugu en hún segist hafa verið alin upp við myndlist í kringum sig og að hún hafi haft unun af að velta henni endalaust fyrir sér. Hún telur mjög mikilvægt að hafa fallega myndlist í kringum sig, mynd­listin hafi sitt eigið tungumál líkt og tónlistin sem hægt sé að upplifa í gegnum tilfinningar og skynjun.

„Verk mín einkennast af ríkri efnis­kennd. Ég leita merkingar í fjöl­breyttu efnisvali og aðferðum. Ég notast við þung efni eins og fúgu og steina sem framkalla jarð­tengingu í mótvægi við óhlutbundið myndmál og oft og tíðum loft­kennda fagur­fræði verkanna. Höfuð­viðfangs­efni verka minna er skynjun okkar og marglaga sjónar­horn. Hvernig við skynjum tíma í marg­víslegum skilningi og víddirnar í kringum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Veggurinn

Mest lesið

1
Grein

Með mikinn áhuga á form­breytingar­mönnum í myndlist

Bragi Guðlaugsson á merkilegt og stórt safn málverka sem hann hefur mikla ánægju af en þar leynast dýrmætar perlur þekktra list­málara. Bragi er ástríðu­safnari en hann segist hafa orðið gaman af að kaupa verk eftir list­málara af yngri kynslóðinni. Hann kynntist Karli Kvaran og Guðmundu Andrésdóttur á yngri árum sem hafði sín áhrif, en sjálfur segist hann hafa byrjað að kaupa frekar „ómerki­lega“ myndlist. Þó að listaverk séu uppi um alla veggi og gott betur segist hann alltaf vera veikur fyrir betri verkum en þeim sem hann eigi fyrir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár