Hvar fæst jólaglögg þessi jólin?

Krydd­legið, upphitað og styrkt rauðvín er kannski ekki allra en þau sem kunna að meta jólaglögg eiga það sameiginlegt að elska það af ástríðu. Þegar frostið nístir okkur inn að beini og kertaljós birta upp dimma tilveruna í skammdeginu er fátt huggulegra en að glöggva sig aðeins. Heimilis­blaðið fór á stúfana í miðbæ Reykja­víkur í lok nóvember til þess að finna út hvar væri boðið upp á jólaglögg.

Kaffi­brennslan, sem er á horni Laugavegs og Klappar­stígs, býður upp á jólaglögg og lætur nokkrar pipar­kökur fylgja í kaupbæti. Á staðnum er boðið upp á létta rétti og bakkelsi og hægt er að sitja bæði inni og úti í gróður­húsinu. Munið bara að súpa jóla­glöggið hratt til að ylja ykkur að innan ef þið veljið að sitja úti.

Á Rósenberg, sem er til húsa á Vestur­götu 3, er boðið upp á bragðgott jólaglögg með möndlu­flögum og rúsínum. Eins og á Kaffi­brennslunni er boðið upp á pipar­kökur með glögginu. Þar er afar kósí að vera og tilvalið fyrir þau sem vilja hlýja sér í huggulegu umhverfi eftir gott bæjarrölt.

Veitinga­staðurinn Bastard á Vegamóta­stíg býður upp á hlýlega og „rustic“ stemningu. Þar er hægt að fá mat og drykki af ýmsu tagi og staðurinn tekur virkan þátt í hvers kyns hátíðum. Jólin eur þar að sjálfsögðu ekki undan­skilin, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Grein

Með mikinn áhuga á form­breytingar­mönnum í myndlist

Bragi Guðlaugsson á merkilegt og stórt safn málverka sem hann hefur mikla ánægju af en þar leynast dýrmætar perlur þekktra list­málara. Bragi er ástríðu­safnari en hann segist hafa orðið gaman af að kaupa verk eftir list­málara af yngri kynslóðinni. Hann kynntist Karli Kvaran og Guðmundu Andrésdóttur á yngri árum sem hafði sín áhrif, en sjálfur segist hann hafa byrjað að kaupa frekar „ómerki­lega“ myndlist. Þó að listaverk séu uppi um alla veggi og gott betur segist hann alltaf vera veikur fyrir betri verkum en þeim sem hann eigi fyrir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár