Keramíkverk eru tímalaus

Inga Elín, myndlistar­maður og hönnuður, leggur mikið upp úr að þægindi, notagildi og fegurð fari saman í keramík­verkum hennar enda eru margir muna hennar þannig að hægt er að nota þá á fleiri en eina vegu. Hún hannar nytja­hluti, listmuni og einnig verðlaun og hefur vart undan.

Ingu Elínu finnst gaman að gera skúlptúra og stærri verk en hennar þekktustu verk eru þó smærri, eins og velti­bollarnir svokölluðu, þar sem falleg hönnun og smáatriðin leika vel saman ásamt notagildi. Árið 2020 opnaði Inga Elín nýtt gallerí, ásamt syni sínum, Kristni Ísaki Ingusyni, sem er framkvæmda­stjóri fyrir­tækisins, á sama stað þar sem hún hafði verið með gallerí 25 árum áður á Skólavörðu­stíg. Hönnun Ingu Elínar spannar vítt svið, munir hennar eru stórir og smáir, allt frá klassískum svart-hvítum upp í fágaða og glæsilega gyllta.

Inga Elín segist hafa haft áhuga á öllum greinum mynd­listarinnar, það hafi þó verið eitthvað við leirinn sem heillaði hana. Hún byrjaði ung að læra myndlist og á 10 ára menntun að baki í myndlist og keramík. Hún var í fimm ár í Myndlista- og handíða­skólanum og útskrifaðist þaðan sem mynd­mennta­kennari. Þá hóf hún kennslu í myndmennt 21 árs gömul og kenndi í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Grein

Með mikinn áhuga á form­breytingar­mönnum í myndlist

Bragi Guðlaugsson á merkilegt og stórt safn málverka sem hann hefur mikla ánægju af en þar leynast dýrmætar perlur þekktra list­málara. Bragi er ástríðu­safnari en hann segist hafa orðið gaman af að kaupa verk eftir list­málara af yngri kynslóðinni. Hann kynntist Karli Kvaran og Guðmundu Andrésdóttur á yngri árum sem hafði sín áhrif, en sjálfur segist hann hafa byrjað að kaupa frekar „ómerki­lega“ myndlist. Þó að listaverk séu uppi um alla veggi og gott betur segist hann alltaf vera veikur fyrir betri verkum en þeim sem hann eigi fyrir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár