Hafrapönnu­kökur Einföld upp­skrift sem er auð­velt að stækka. Mynd: Harpa Lind Hjálmarsdóttir

Hafrapönnukökur

Harpa Lind Hjálmars­dóttir er með vinsælli áhrifa­völdum á Íslandi og heldur úti hlað­varpinu Sirpan. Ein af hennar uppáhalds­uppskriftum eru hafra pönnu­kökur. „Þetta er eitthvað sem ég fæ mér mjög reglulega í morgunmat, og er dugleg að stækka uppskriftina svo aðrir geti notið þeirra með mér,“ segir hún.

Einföld uppskrift sem hentar vel fyrir einn: 

1/2 banani 

1 dl hafrar 

2 egg 

Vanillu­dropar 

Hnífs­oddur salt 

1/4 tsk. lyftiduft (má sleppa)

Harpa LindEr með rúm­lega tíu þús­und fylgj­endur á Tiktok. Hún deilir reglu­lega skemmti­legum upp­skriftum en hafrapönnu­kök­urnar eru í miklu upp­á­haldi.

Öll hráefnin eru sett í blandara og blandað saman, úr því verður deig sem leyft er að standa í smá stund (u.þ.b. 3 mín.) til að hafrarnir fái tækifæri til að drekka í sig smá vökva. Ef deigið er enn þá of þunnt þá er sniðugt að bæta við smá höfrum til viðbótar. Ef deigið er of þykkt þá er sniðugt að setja smá mjólk í það. 

Deiginu er síðan hellt á pönnu sem er við vægan hita, hægt að gera eina risastóra pönnuköku, eða nokkrar minni. Þegar það fara að myndast loftbólur í deiginu er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár