Mynd: Golli

Með mikla ástríðu fyrir myndlist

Myndlistar­áhugi Vilhjálms Bjarna­sonar, fyrr­verandi alþingis­manns, kviknaði snemma, eða þegar hann fékk bók um myndlist Gunnlaugs Blöndal í fermingar­gjöf, og hefur verið óslökkvandi síðan. Hann er ástríðu­safnari og á verk eftir bæði okkar þekktustu og virtustu málara, sem og aðra minna þekkta.

Vilhjálmur sýndi okkur vegg á heimili sínu sem er þakinn fallegri og merkilegri myndlist, m.a. af uppáhalds­fjallinu Snæfells­jökli sem hann segir fremur vera okkar borgar­fjall en Esjuna.

Þú ætlar að segja mér frá þessum aðalvegg í stofunni þó að það sé kannski enginn aðal­veggur að mér sýnist. „Það er enginn aðal­veggur í stofunni, maður á aldrei að mismuna börnunum sínum,“ segir Vilhjálmur glettinn. „Ég fékk mikinn áhuga á myndlist þegar ég fermdist en þá fékk ég listaverkabók um Gunnlaug Blöndal. Ég byrjaði reyndar að vinna fyrir launum næsta dag en ég reiknaði nú aldrei með því að ég gæti eignast almennilega mynd eftir Gunnlaug Blöndal. Þessar tvær myndir sem hér eru komu upp í hendurnar á mér þannig að mér voru boðnar þær til kaups en þá var liðinn töluverður tími frá fermingunni, ein 15 ár, þar til ég eignaðist stærri myndina, sem heitir Stúlka á Siglu­firði, og 40 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár