Stílhrein kósíheit

Ólafía Þórunn Kristins­dóttir, fyrirtækja­eigandi og golfari, býr ásamt fjöl­skyldu sinni í tveggja hæða raðhúsi þar sem mínímal­isminn og hlýleikinn leika sér saman. Ólafía Þórunn er fyrirmynd margra. Hún hefur gengið í gegnum erfið­leika, svo sem áfalla­streitu­röskun og kulnun, og stendur keik eftir þá reynslu og getur án efa hjálpað öðrum í sömu sporum með því að segja frá reynslu sinni.

Hjónin Ólafía Þórunn og Thomas og yngri sonur þeirra, Alexander. Tolli málaði málverkið sem er af Herðubreið.
Hjónin Ólafía Þórunn og Thomas og yngri sonur þeirra, Alex­ander. Tolli mál­aði mál­verkið sem er af Herðu­breið. Mynd: Golli

Þorri er handan við hornið og vetrar­sólin reynir sitt besta til að láta ljós sitt skína. Nýleg hús og flottur arkitektúr njóta sín í Urriða­holti og í einu þeirra, tveggja hæða raðhúsi, býr Ólafía Þórunn Kristins­dóttir, fyrirtækja­eigandi og golfari, ásamt fjöl­skyldu sinni. Eigin­maðurinn er Þjóð­verjinn Thomas Bojanowski, sem rekur fyrir­tækið Scholarbook, og synirnir eru Maron, sem er þriggja og hálfs árs, og Alexander sem verður eins árs núna í febrúar. Maron er í leik­skólanum en Alexander sefur í vagni úti á svölum.

Húsið og heimili fjöl­skyldunnar er ekki það eina sem er eins og listaverk – útsýnið úr stofu­gluggunum er eins og síbreytilegt listaverk þar sem Esjan og Vífils­staðahlíð blasa við. Og himinninn er listaverk út af fyrir sig.

Hjónin eiga heimili í tveimur löndum en í Þýska­landi eiga þau einbýlishús í borginni Koblenz og þar vaxa blóm í ýmsum litum í garðinum á sumrin. Hjónin festu kaup …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Grein

Með mikinn áhuga á form­breytingar­mönnum í myndlist

Bragi Guðlaugsson á merkilegt og stórt safn málverka sem hann hefur mikla ánægju af en þar leynast dýrmætar perlur þekktra list­málara. Bragi er ástríðu­safnari en hann segist hafa orðið gaman af að kaupa verk eftir list­málara af yngri kynslóðinni. Hann kynntist Karli Kvaran og Guðmundu Andrésdóttur á yngri árum sem hafði sín áhrif, en sjálfur segist hann hafa byrjað að kaupa frekar „ómerki­lega“ myndlist. Þó að listaverk séu uppi um alla veggi og gott betur segist hann alltaf vera veikur fyrir betri verkum en þeim sem hann eigi fyrir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár