Uppáhaldshönnun arkitektsins: Sjö „raðhús“ byggð á þaki Fiskiðjunnar

Baldur Ó. Svavarsson, arkitekt og einn eigenda teikni­stof­unnar Úti og inni, hefur hannað margs konar húsnæði í gegnum árin. Þegar hann er spurður hvert sé uppáhalds­verkið sem hann sjálfur hefur hannað, nefnir hann sjö íbúða „raðhús“ sem hann hannaði og sem byggð voru á þakhæð Fisk­iðjunnar í Vestmanna­eyjum. „Það var einstak­lega sérstakt og skemmtilegt verkefni.“

Fiskiðjan í Vestmanna­eyjum var byggð um miðja 20. öld við Ægisgarð, rétt við höfnina í Eyjum, og um tíma var Fiskiðjan eitt af stærstu frysti­húsum á landinu. Verbúð var á þaki hússins í áratugi sem samanstóð af 50 herbergjum. Baldur Ó. Svavarsson, arkitekt og einn eigenda teiknistofunnar Úti og inni, segir að það sé skemmtilegt hvernig fisk­vinnsluhús voru skipulögð og hönnuð á árum áður sem hluti af bæjar­skipulaginu og sem hluti af bæjar­myndinni. „Þetta gæti allt eins verið skrif­stofuhús eða íbúðarhús en þegar fisk­vinnsluhús eru byggð í dag þá eru oft byggðar einhverjar glugga­lausar og leiðinlegar skemmur.“

Teikning sem sýnir að „rað­húsin“ - íbúð­irnar - eru mis­stór.

Svo byrjaði að gjósa í Eyjum 23. janúar árið 1973 og húsið stóðst þá áraun. „Það er svo öflugt burðar­virki í húsinu af því að þetta var fisk­vinnsluhús þar sem voru stórar og þungar vélar þannig að það er ótrúlega öflugt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Grein

Með mikinn áhuga á form­breytingar­mönnum í myndlist

Bragi Guðlaugsson á merkilegt og stórt safn málverka sem hann hefur mikla ánægju af en þar leynast dýrmætar perlur þekktra list­málara. Bragi er ástríðu­safnari en hann segist hafa orðið gaman af að kaupa verk eftir list­málara af yngri kynslóðinni. Hann kynntist Karli Kvaran og Guðmundu Andrésdóttur á yngri árum sem hafði sín áhrif, en sjálfur segist hann hafa byrjað að kaupa frekar „ómerki­lega“ myndlist. Þó að listaverk séu uppi um alla veggi og gott betur segist hann alltaf vera veikur fyrir betri verkum en þeim sem hann eigi fyrir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár