„Ég vildi hafa heimilið fallegt“

Halldóra Sif Guð­laugs­dóttir fata­hönn­uður býr ásamt fjöl­skyldu sinni í tveggja hæða rað­húsi í Mos­fellsbæ í Art Deco-stíl, en hús­móð­irin er hrifin af smá glamúr. Halldóra Sif segir frá ein­kennum athygl­is­brests en hún fór ekki í grein­ingu fyrr en fyrir fjórum árum. Hún vill hjálpa öðrum sem eru í sömu sporum og segir oft best að ræða hluti til að fá lausn.

Í Mos­fellsbæ er nátt­úran allt í kring í hverf­inu þar sem hún býr í nútíma­legu tveggja hæða rað­húsi. Lóðin fyrir framan húsið er ekki full­kláruð en þegar inn í húsið er komið tekur við lit­ríkur ævin­týra­heimur.

Halldóra Sif klæð­ist fjólu­blárri buxna­drakt, hvítri skyrtu og ber fjólu­blátt bindi. Allt er þetta hönnun hennar. Hvítir skórnir eru frá íslenska merk­inu Kalda.

Hún býður til sætis í stof­unni á efri hæð­inni.

Í eigin hönnunHalldóra Sif í glæsi­legum fötum sem hún hann­aði. Skórnir eru frá Kalda. Stóllinn, Nemo, var sér­pant­aður frá Ítalíu en Fabio Novembre hann­aði hann. Sófa­borðið, sem er dönsk hönnun, er frá Snúrunni. Mottan, sem er sér­sniðin, er frá Parket og gólf. Spegla­verkið er frá Reflections Copenhagen.

Halldóra Sif ólst upp í Kópavogi fyrstu árin en flutti níu ára gömul í Mos­fellsbæ. Áratugir liðu þar til byrjað var að byggja í hverf­inu þar sem hún …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Grein

Með mik­inn áhuga á form­breyt­ing­ar­mönnum í mynd­list

Bragi Guð­laugs­son á merki­legt og stórt safn mál­verka sem hann hefur mikla ánægju af en þar leyn­ast dýr­mætar perlur þekktra list­mál­ara. Bragi er ástríðusafn­ari en hann seg­ist hafa orðið gaman af að kaupa verk eftir list­mál­ara af yngri kyn­slóð­inni. Hann kynnt­ist Karli Kvaran og Guðmundu Andr­és­dóttur á yngri árum sem hafði sín áhrif, en sjálfur seg­ist hann hafa byrjað að kaupa frekar „ómerki­lega“ mynd­list. Þó að lista­verk séu uppi um alla veggi og gott betur seg­ist hann alltaf vera veikur fyrir betri verkum en þeim sem hann eigi fyrir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár