Um Heimilisblaðið

Nýtt blað fyrir heimilið þitt

Heimilis­blaðið er blað um málefni heimilisins og fjöl­skyldunnar. Blaðið er gefið út af Sameinaða útgáfu­félaginu, sem einnig gefur út Heimildina. Allir áskrifendur Heimildarinnar munu fá blaðið sent heim með Heimildinni einu sinni í mánuði að jafnaði. Til viðbótar verður Heimilis­blaðið í frídreifingu í dagvöruverslunum, sund­laugum, veitinga­stöðum og víðar. Hægt verður að fá áskrift að Heimilis­blaðinu og fá blaðið sent heim, auk aðgangs að efni á vefnum. Heimilis­blaðið er óháður miðill í dreifðu eignar­haldi.

Ritstjóri er Ingibjörg Dögg Kjartans­dóttir og umsjónar­maður Ragn­heiður Linnet. Heimilis­blaðið var fyrst gefið út 1894 til 1896 og síðar frá árunum 1912 til 1983. Því er það hér með endur­reist.

Reglur um ritstjórnarlegt sjálf­stæði.