Reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði

Ritstjóri Heimilis­blaðsins ber ábyrgð á því efni sem birtist í hvers kyns útgáfu þess, auka­útgáfum og á vefnum heimilisbladid.is. Ritstjóri starfar í umboði stjórnar Sameinaða útgáfu­félagsins ehf.

Ritstjóri hagar umfjöllunum í samræmi við stefnu miðilsins og siða­reglur.

Faglegur aðskilnaður er á milli ritstjórnar og auglýsinga­deildar. Hugsanlegar kynningar eða markaðs­efni eru unnar af öðrum en föstum starfs­mönnum á ritstjórn og merktar sem slíkar.

Áminning og uppsögn starfs­manns á ritstjórn fer eftir ákvæðum kjara­samninga og þeim lögum sem í gildi eru á hverjum tíma.

*skv. 24. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011